Útskriftarferðin:D
miðvikudagur, fimmtudagur og föstudagur fór í útskriftarferð með bekknum.
ég ætla að segja frá ferðinni í stuttu máli..
Miðvikudagurinn:
lögðum af stað kl 16:00 og þá vissum við ekkert hvert við værum að fara, þetta var þá sem sagt óvissuferð
En eftir 2 tíma vorum við mætt suður í borgina.. komum okkur fyrir í umfí heimilinu og fórum svo að borða á Pizza Hut
Eftir pizzurnar fórum við í bio, við fórum í regnbogann og stóðum þar alveg heillengi afþví að það var enginn sammála um hvaða mynd við ætluðum á.. við vorum búin að ákveða að fara á when stragers calles en maður verður víst að vera orðin 16 ára þannig að það voru sumir sem að máttu ekki fara á hana
en það endaði með því að við fórum á Prime.. hún er geðveik
en eftir myndina löbbuðum við í klukkutíma að umfí húsinu og fórum að sofa.
Fimmtudagurinn:
Vöknuðum kl 9 eða eitthvað og pökkuðum dótinu borðuðum og lögðum svo í hann, við vissum ekkert hvert við vorum að fara.
en við stoppuðum fyrir utan skautahöllina og héldum að við værum að fara á skauta, en nei nei við fórum í fjölskyldu og húsdýragarðinn! men.. við rölltum þar um í smá stund og fórum svo uppí rútu.
Næsti aðfangastaður var laugavegurinn, við fengum frjálsann tíma þar til að gera eitthvað skemmtilegt
svo fórum við í Alþingishúsið og eitthver kona labbaði með okkur þar.
svo fórum við í bláalónið... ahh það var geggjað þægilegt
en við gistum í Grindavík, í félagsmiðstöðinni. við horfðum á walk the line og chilluðum eitthvað
Föstudagur:
vöknuðum kl hálf 7 og pökkuðum niður. við vorum að fara í river rafting í hvítá kl 9
váá það var GEÐVEIKT gaman
En við sem sagt fórum á bát niður hvítá, en í millitíðinni þá fórum við að hoppa í ánna. Það var geggjað
en eftir river rafting var bara farið í náttföt, með sæng og kodda í rútuna af því að áin var sko bara 4° og okkur var skítkallt.. en ég svaf í borganes og þarf fengum við okkur að borða og svo var bara spjallað og svona leiðina heim
þetta var geggjuð ferð og ég vil bara þakka ykkur fyrir ferðina
en ég nenni ekki að skirfa meira.. þannig að bara þar til síðar
-Heiða
3 athugasemdir
